fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir síðara andsvar. Ég ætla kannski ekki alveg að velta mér yfir í borgaralaunin vegna þess að eins og hv. þingmaður segir þá er það svolítið framtíðarsýn. Það sem við þurfum er að grípa skilyrðislaust inn í núna, strax í gær. Annað er svo aftur á móti stefið sem má skoða út frá því. Ég hef pínulítið verið að skoða borgaralaun, það hafa verið gerðar ákveðnar tilraunir með þau í löndum eins og Finnlandi og fleiri. Ég ætla ekkert endilega að eyða andsvarinu mínu í það en þegar verið er að tala um fólk sem þarf umframaðstoð, fólk sem er með fötlun, fólk sem þarf hjálpartæki, konuna með gervifótinn, hvaðeina annað sem er, þá á auðvitað ekki að skilja neinn út undan þannig að hann fái ekki alla þá þjónustu og alla þá aðstoð sem hann mögulega getur nýtt sér til að búa sér eins þokkalegt líf og kostur er miðað við fötlunina sem glímt er við. En það er náttúrlega eins og við vitum, það hefur verið mikill misbrestur á því. Ég heyrði t.d. sögu fullorðinnar konu sem var búin að vera í sama rúminu í einhver 18 ár, sama sjúkrarúminu, og hún var ekki að fá neitt nýtt rúm og rúmið náttúrlega orðið handónýtt og allt það og þetta var fötluð kona. Sjúkratryggingar sögðu bara: Nei, því miður ekkert nýtt rúm fyrir þig, góða kona. Það eru reyndar tvö ár síðan ég var að reyna að hjálpa þessari konu og ræða við hana og ég er að vona að það hafi breyst. Kannski hef ég fallegri sögu um það að segja seinna. En það er alveg sama hvert litið er í kerfinu, við þurfum að grípa inn í núna strax. Við þurfum að taka utan um fólkið okkar núna strax, ekki til framtíðar, ekki í gær, núna.