153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:20]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er rétt, mér finnst bara rétt að setja þessi mál varðandi réttindi öryrkja og eldri borgara í samhengi við stjórnarskrána, þau réttindi sem eru tryggð þar, þau réttindi sem stjórnarskráin leitast við að tryggja sem verður að útfæra í lögum. Þetta er bara eitt ákvæði, þarna er sá rammi sem ég kom inn á áðan sem er tryggður og meira að segja er hann líka tryggður í félagsmálasáttmála Evrópu og líka alþjóðasamningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Varðandi geðheilbrigði þá tel ég það augljóst að rétturinn samkvæmt 76. gr. nái einnig til þeirra sem eru veikir vegna geðsjúkdóms. Það segir beinlínis að öllum sem þess þurfa skuli tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika og örorku. Þannig að ef þú átt við geðsjúkdóm að stríða þá er það sjúkleiki og fellur þar undir og jafnvel líka vegna örorku. Sálfræðiaðstoð, ókeypis sálfræðiaðstoð, er einfaldlega rétturinn til þessarar aðstoðar. Þú leitar þér aðstoðar hjá sálfræðingi eða geðlækni ef um geðsjúkdóm er að ræða. Það sem er vandamálið í framkvæmdinni, sérstaklega varðandi öryrkja og eldri borgara og tekjuskerðingar þeirra, er að t.d. þessi réttur virðist vera skilyrtur og takmarka atvinnufrelsi. Ég get komið inn á 75. gr. á undan:

„Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorður með lögum, enda krefjist almannahagsmunir þess.“

Það eru engir almannahagsmunir sem krefjast þess að réttur öryrkja og eldri borgara samkvæmt 76. gr. sé skertur af því að þeir eru af sjálfsbjargarviðleitni að fá atvinnutekjur. Það er ekkert sem segir það. Þetta er sjálfstæður réttur samkvæmt 76. gr. og skerðir ekki réttinn í greininni á undan.