fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir svar við andsvari mínu. Afsakið að ég sé í símanum, ég er að fara í gegnum almennu hegningarlögin og það eru svo ótrúlega mörg ákvæði þar. En hér er þetta, 168. gr. almennra hegningarlaga tekur á almannaöryggi, almannaöryggisbrotum. Hv. þm. Eyjólfur Ármannsson var að reifa hér stjórnarskrárákvæðið og það eru skilyrði bundin við það að setja ákveðin réttindi í skorður. Ég myndi einmitt segja að þessi réttindi öryrkja sem eru sett í skorður falli ekki undir 168. gr. almennra hegningarlaga. Við gætum gert þetta hér í allan dag, túlkað stjórnarskrárákvæði fram og til baka, og bent á það augljósa, hvaða réttindi, borgararéttindi og mannréttindi, falli þar undir því ég held að ég og hv. þm. Eyjólfur Ármannsson, sem erum bara svipað lagalega þenkjandi, gætum alveg teygt ákvæði fram og til baka þannig að það sem okkur þykir rétt og það sem við beitum okkur fyrir falli þar undir, enda er hv. þingmaður greinilega vel löglærður maður. Verst þykir mér að það eru ekki stjórnarliðar hér í þingsal til þess að koma í andsvör við okkur því ég væri í alvörunni til í að heyra réttlætinguna á núverandi kerfi, á þessum skerðingum sem eiga sér stað af því að þetta gerðist allt fyrir mína tíð og sum lög mögulega sett fyrir tíð okkar allra í þessum þingsal, sum sett á árinu, háskólaárinu, sem ég kláraði og kom inn á þing. Sumum lagabálkum fylgja ekki greinargerðir og sögulegar skýringar sem mér þykir einstaklega miður. Ég ætla að spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála mér um að það sé nauðsynlegt að skýra þessar skerðingar og þessar skorður.