153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:24]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Þessar skerðingar eru gott dæmi, sérstaklega þessi skerðing vegna atvinnutekna öryrkja og aldraðra, að leyfa þeim ekki að njóta atvinnutekna sinna með því að skerða almannatryggingagreiðslur þegar farið er út á vinnumarkaðinn. Þeir sem fá aðstoð vegna laga um félagslega aðstoð, eru með framfærsluuppbót — þar skerðast 65 kr. af hverjum 100 kr. sem þeir fá í tekjur. Hver fer að vinna og fær hundraðkall borgaðan og svo er skert um 65 kr.? Það vil ég meina að gangi gegn anda 76. gr. og líka atvinnufrelsisákvæðinu, það gerir það, vegna þess að allir eiga rétt til að sækja vinnu, öllum er frjálst að stunda þá vinnu sem þeir kjósa. Það er ekki hægt að setja þessu skorður og það eru engir almannahagsmunir sem krefjast þess að skerða almannatryggingagreiðslur vegna sjálfsbjargarviðleitni fólks, sérstaklega ekki hjá eldra fólki sem er búið að greiða skatt alla sína tíð. Krafa Flokks fólksins er sú að öryrkjar eigi að fá að leita sér að vinnu og vinna í tvö ár áður en það kemur nýtt örorkumat. Þannig er það. Varðandi þessi réttindi í 76. gr. þá eru þetta ekkert einstök íslensk réttindi. Við erum t.d. aðilar að félagsmálasáttmála Evrópu og alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi sem er alþjóðasamningur frá Sameinuðu þjóðunum. Þar eru ýmsar reglur af sama toga og fjalla um það sem komið er inn á í 76. gr. Það má vekja sérstaklega athygli á 12. og 13. gr. félagsmálasáttmálans þar sem fyrirmæli eru um réttinn til félagslegs öryggis, félagslegrar aðstoðar og læknishjálpar, þar sem hv. þingmaður minntist á geðsjúkdóma, (Forseti hringir.) og í 11. og 12. gr. alþjóðasamningsins eru áþekk atriði þannig að við erum ekki ein á báti og erum algerlega skuldbundin að standa við þetta.