fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir ræðuna. Mín andsvör eru á svipuðum slóðum og hjá hv. þm. Lenyu Rún Taha Karim. Ég velti fyrir mér hvort það hafi eitthvað með það að gera að við erum öll þrjú lögfræðingar, hvort það gæti mögulega verið málið. En stjórnarskráin er mér einmitt líka hugleikin ásamt orðalagi sem hv. þingmaður notaði hér áðan varðandi stjórnskipulega skyldu Alþingis samkvæmt stjórnarskránni til að samþykkja fjárlög. Þessi stjórnskipulega skylda Alþingis hefur nefnilega komið til umfjöllunar í pínulítið öðru samhengi undanfarið, kannski helst í dómi sem féll núna nýlega í Hæstarétti þar sem Alþingi er ávítt af dómstólnum fyrir að sinna ekki því sem dómstóllinn kallar stjórnskipulegri skyldu sinni til að ganga úr skugga um það að sú löggjöf sem er samþykkt hér í þinginu sé í samræmi við stjórnarskrána. Mig langar aðeins að spyrja hv. þingmann út í það, hann hefur komið inn á þetta í einhverjum atriðum í sinni ræðu. Mér er þetta mjög hugleikið þar sem er verið að, hvað á ég að segja, þröngva í gegnum þingið ákveðnum frumvörpum sem varða mjög mikilvæg grundvallarréttindi borgaranna án þess að þessi skoðun fari fram. Mig langar til þess að spyrja hv. þingmann hvort hann telji þessa skyldu löggjafans ekki vera ótvíræða, að fara í þetta skipulega mat á því hvort lög sem við erum að samþykkja hér í þessum þingsal samræmist ákvæðum stjórnarskrárinnar og bregðast við ef svo er ekki. Og hvort hann telji ekki að slík úttekt hefði þurft að fara fram á fjárlögunum líka eins og annarri löggjöf sem hér er samþykkt.