fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi stjórnskipulega skyldu Alþingis til að meta það hvort lög frá Alþingi standist stjórnarskrána eða ekki þá er ég algerlega sammála hv. þingmanni um að þetta mat þurfi að fara fram í hverju tilviki. Áður fyrr litu dómstólar á löggjafarviljann þannig að hann fæli í sér, ég segi ekki sjálfkrafa, mat á því að lögin stæðust stjórnarskrána. Áður fyrr var mjög sjaldgæft að dómstólar segðu það eða dæmdu að lög stæðust ekki stjórnarskrána í þingræðisríki. Það var litið svo á að þingræðið réði og það var metið. Núna féll t.d. dómur, sem hv. þingmaður þekkir vel, þann 26. október sl. í svokölluðu veiðifélagamáli þar sem kemur fram í dómi Hæstaréttar að löggjafinn hafi ekki sinnt þessu mati, þ.e. að meta það hvort ákvæði laga stæðust ekki stjórnarskrána. Í því máli var tilefni til að gera það. Ég tel klárt mál þegar tilefni er til þá eigi alltaf að gera það, sérstaklega. Þannig að það er ekki forsvaranlegt að segja það í frumvarpi: Það er ekki tilefni til að meta hvort ákvæði þessa frumvarps standist stjórnarskrána þegar það er klárlega tilefni til þess. Sérstaklega þegar fjallað er um viðkvæm mannréttindi, mikilvæg mannréttindi, þá á alltaf að gera það.
Varðandi fjárlögin þá erum við komin inn á svolítið annað mál. Þá er náttúrlega komið að valdheimildum efnahagsstjórnar landsins. Við höfum t.d. haldið því fram mjög lengi að 69. gr. almannatryggingalaganna sé ekki virt og við getum líka haldið því fram að ekki sé verið að virða 67. gr. laga um stjórnarskrána um rétt til aðstoðar. (Forseti hringir.) Ég reyni að svara því í næsta andsvari.