fjárlög 2023.
Frú forseti. Já, það er einmitt þetta orðalag sem kemur fram í dómnum sem er svo áhugavert. Það sem löggjafinn orðar og er tilgreint í rauninni í greinargerð sem er rituð í ráðuneyti, eins og oft þegar um stjórnarmál er að ræða sem kemur síðan inn til Alþingis, og þetta er algengt orðalag, er að frumvarpið gefi ekki tilefni til skoðunar á því hvort það standist stjórnarskrá. En ég er nú komin á þá skoðun að það sé alltaf tilefni til þess og það sé í rauninni alveg ótrúlegt að það skuli ekki hreinlega vera skýrt skref í löggjafarferlinu, að það sé deild sem frumvarp fer í gegnum áður en það kemur til þingsins og inn í þingsal — það væri kannski eðlilegt að það færi fram í nefndarvinnunni eða jafnvel fyrr — þar sem þetta væri hreinlega metið og rökstutt. Ef komist er að þeirri niðurstöðu að frumvarpið, eins og orðalagið er, gefi ekki tilefni til skoðunar á því hvort það standist stjórnarskrá — það hlýtur náttúrlega alltaf að vera tilefni til þess, en spurningin er hvort það sé tilefni til að hafa áhyggjur af því, hvort það séu kannski engin álitaefni — þá mætti það vera rökstutt. Það er ekki rökstutt í þessum lögum sem vísað er til í dómnum, sem er mjög sérkennilegt vegna þess að það er augljóst að það mál snertir á mannréttindum sem eru í stjórnarskrá, í því tilviki félagafrelsinu. Nú erum við með frumvörp sem varða ferðafrelsi, rétt fólks til að vera ekki lokað inni eða að ferðafrelsi þess sé ekki skert nema með lögum, og ýmis önnur mannréttindi. Þannig að það er ekki nokkur leið að segja að það sé ekki tilefni til skoðunar. Það ætti alltaf að vera tilefni til skoðunar. Ég ætla því að spyrja hv. þingmann hvað honum finnist um að (Forseti hringir.) nú hafa Píratar aftur lagt fram frumvarp til laga um breytingar á þingskapalögum þess efnis að komið verði á fót sérstöku batteríi (Forseti hringir.) sem við ætlum að kalla Lögréttu sem fer yfir þetta, hvort þetta væri ekki eðlilegt skref í lagasetningarferlinu.