fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Þetta er mjög áhugavert efni. Þegar stendur í frumvarpi að það gefi ekki tilefni til þess að skoða hvort ákvæði frumvarpsins standist stjórnarskrá og þegar það fjallar um mikilvæg réttindi er augljóslega verið að fara með rangt mál í frumvarpinu. Það er nánast ámælisvert að það fái að standa. Það á alltaf að meta það sérstaklega þegar tilefni er til þess hvort ákvæði standist stjórnarskrána eða ekki og þá hvaða greinar stjórnarskrár það eru. Þegar sagt er að það gefi ekki tilefni til þess þá fyndist mér eðlilegt að það væri rökstutt, að það væri sagt: Þetta varðar ekki mannréttindakafla stjórnarskrárinnar o.s.frv. En alltaf þegar það gerir það þá er mjög mikilvægt að það sé metið.
Ég gæti haldið langa ræðu um aðstoð fyrir þingmenn og ég lít á frumvarp Pírata öðrum þræði þannig. Við þurfum að meta þetta og samkvæmt frumvarpinu myndi Lögrétta taka að sér þetta mat, hvort ákvæði standist stjórnarskrá eða ekki. Þetta hefur verið gert í ráðuneytum. Það er hægt að gera þetta í þinginu og stofnanir úti í bæ geta gert þetta líka. Vandamálið er hins vegar, og ég hef tekið eftir því í mínu stutta starfi sem þingmaður, hversu lítill aðgangur þingmanna er að lögfræðiaðstoð. Það er alveg ámælisvert. Ég minni á það að lagaskólinn var stofnaður hér í þessu húsi sem hluti af sjálfstæðisbaráttunni árið 1907. Það var ekki bara til að framleiða sýslumenn og dómara, það var líka til að vera til aðstoðar þessari stofnun sem var að fá vaxandi löggjafarvald. Löggjafarvald þarf að fá aðgang að lögfræðiþekkingu, þar á meðal þekkingu sem getur metið hvort ákvæði frumvarpa og laga standist stjórnarskrá þegar þau eru samþykkt. Það er grundvallaratriði. Hvernig það er gert er seinni tíma úrlausnarefni.