fjárlög 2023.
Virðulegi forseti, hv. þingheimur og kæra þjóð, þið sem heima sitjið og fylgist hér með umræðu um fjárlagafrumvarp í sjónvarpinu. Mig langar til að ítreka hugmyndafræði mína varðandi námslán, sem er þessi: Þeir nemar sem eru með námslán og kjósa að vinna eiga að hafa leyfi til að vinna burt séð frá öllu öðru ef þá lystir svo, án þess að það skerði námslánin þeirra.
En mig langar aðeins að minnast á eitthvað sem gott er í þessu fjárlagafrumvarpi. Undanfarin tvö ár hefur mjög náinn fjölskyldumeðlimur greinst með alzheimersjúkdóminn og því hef ég fengið að upplifa hvað það er sorglegt að standa frammi fyrir þessari veiki sem er ólæknandi, alla vega eins og sakir standa — eitthvað er hægt að halda henni í skefjum en óverulega, miðað við það sem ég hef fengið að kynnast.
Í beinu framhaldi af þessu langar mig að segja hér eitt um þetta ágæta frumvarp okkar, sem hljóðar svo: Árið 2021 tók Seiglan til starfa, sem er þjónustumiðstöð fyrir fólk með heilabilunarsjúkdóma. Í viðbótarfjárlögum ársins í ár var veitt 50 millj. kr. framlag til Seiglunnar. Ekki var gert ráð fyrir samsvarandi framlagi í frumvarpi þessu fyrir næsta ár en Seiglan sendi inn umsögn og óskaði eftir fjárveitingu að upphæð 85 millj. kr. að lágmarki til að tryggja áframhaldandi rekstur þessarar þjónustu. Samkvæmt nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar stendur til að veita Alzheimersamtökunum 100 milljónir til reksturs Seiglunnar og er það vel.
Það er ekki margt í þessu frumvarpi sem við teljum að beri að fagna sérstaklega en þarna sá meiri hluti fjárlaganefndar vissulega sóma sinn í því að veita mikilvægt framlag í mikilvægan málaflokk. Ég vona að framvegis verði rekstur Seiglunnar, sem og rekstur SÁÁ, tryggður og að samtökin lendi ekki í því, sem er mikilvægt verkefni að ganga í gegnum, að þurfa að óska eftir rekstrarframlagi á fjárlögum hvers einasta árs í stað þess að fá samning um reksturinn til frambúðar. Hvorki alzheimer né vímuefnafíkn mun hverfa. Þetta verður hér og við verðum bara að horfast í augu við það. Það er ósk mín að greiðslur til þessara málefna verði fastar og hækki sjálfkrafa með neysluvísitölu. Svo mörg voru þau orð.
En það sem mig langaði til að ræða hér er eftirfarandi: Nú er ég orðinn 73 ára og er elsti þingmaðurinn á þessu þingi sem nú er og jafnframt elsti einstaklingur sem hefur verið kosinn á þing í fyrsta skipti. Ég er svo heppinn að ég fékk tækifæri til að stunda líkamsrækt allt frá árinu 1981 sem hefur gert það að verkum að ég er í þokkalegu ástandi, sem ekki allir eru á þessum aldri. Mig langar til að segja ykkur hvernig það byrjaði allt saman, bara svona að gamni. Árið 1981 var haldin á Broadway, sem var veitingastaður eða skemmtistaður í kjallara Sambíós við Álfabakka, 50 ára afmælisveisla FÍH, Félags íslenskra hljómlistarmanna. Þar kom fram urmull af öllum hljómsveitum, bæði gömlum og nýjum, og ein af nýju hljómsveitunum var Egó. Forsöngvari Egó var Bubbi Morthens. Á þessum tíma var hann álitinn svolítið ólíkindatól og hann gerði það að gamni sínu að fara úr að ofan. Hann hljóp um sviðið eins og brjálaður maður, söng og trallaði og allir öskruðu af gleði og ánægju að sjá þennan mann í góðu formi vera að skemmta okkur. Þegar ég kom heim til mín þetta kvöld horfði ég í spegil og var næstum farinn að gráta. Upp frá þessu þá fór ég að æfa, sem hefur gert það að verkum að í dag er ég í þokkalegu standi. En þegar ég segi þetta þá fer ekki alltaf saman hljóð og mynd, því að þó svo að ég sé í þokkalegu standi þá er ég orðinn þetta gamall og veit ekki hvert stefnir.
Nú vil ég einmitt ræða það sem þetta spjall mitt snýst um. Það er ekki mikið um þetta fjárlagafrumvarp að segja hvað varðar hjúkrunarheimili. Umfjöllunin um fjárheimildir á málefnasviði 25.10, sem tekur til hjúkrunarheimila, er heldur rýr. Heildarfjárheimild málefnasviðsins var í frumvarpinu 68 milljarðar kr. Fjárheimild til málaflokksins hækkar á milli ára en þar vega launa- og verðlagsbætur þyngst, enda mælist verðbólga tæp 10%. Áætlað er að fjárfesta fyrir tæpa 6 milljarða á árinu sem þýðir með öðrum orðum að ríkið ætlar að greiða tæpa 6 milljarða í byggingu nýrra hjúkrunarheimila, sem er vel. 6 milljarðar kunna að hljóma eins og svaka há fjárfesting en vert er að hafa í huga að hjúkrunarheimili sem verið er að byggja núna á Húsavík og mun hafa 60 hjúkrunarrými, átti upphaflega að kosta 2,3 milljarða en mun að öllum líkindum kosta meira en 5 milljarða. Ef við göngum út frá því að þessir 6 milljarðar sem áætlaðir eru á þessu ári í fjárlögunum fari í álíka verkefni þá erum við að tala um 70 ný hjúkrunarrými. Það er allt og sumt. Biðin eftir hjúkrunarrými er löng og það er afar erfitt fyrir fólk að bíða í óvissu mánuðum og jafnvel árum saman eftir dvöl á hjúkrunarheimili. Ríkisstjórnin hefur árum saman vísað til þess að nú standi yfir átak í uppbyggingu hjúkrunarheimila. Þetta átak hefur ekki skilað meiri árangri en svo að biðlistarnir lengjast frá ári til árs. Við erum í raun ekki að byggja upp hjúkrunarheimili nógu hratt til þess að þjónustan geti haldið í við löngu fyrirséða öldrun þjóðarinnar.
Ég vil vekja athygli á því að nær helmingur allra umsækjenda þarf að bíða lengur en þrjá mánuði eftir rými. Hér er um að ræða tölur frá embætti landlæknis sem sýna alvarleika málsins svart á hvítu. Síðan er ekki nóg að byggja hjúkrunarheimili, það þarf að fjármagna reksturinn. Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu bentu á, í umsögn sinni við fjárlög, að fjármagn vantar til þess að ríkið geti staðið við gefin loforð um styttingu vinnuvikunnar og bætt vaktaálag og samtökin telja að í fjárlögin vanti 1.200 milljónir vegna þess eins. Ég hef ekki þá þekkingu sem hv. fjárlaganefndarmenn búa yfir en ég get ekki séð að það eigi að bæta þessum 1.200 milljónum við frumvarpið milli umræðna á breytingartillögum meiri hluta fjárlaganefndar. Þetta þýðir væntanlega að hjúkrunarheimili þurfi að fækka starfsfólki til að geta staðið við sínar launaskuldbindingar og ég vona svo sannarlega að ég hafi rangt fyrir mér.
Eldri borgarar, þeir sem eru orðnir 67 ára og eldri, eru í dag milli 48.000 og 50.000. Þar af eru 23.000 komnir yfir 75 ára aldur, svo það liggur ljóst fyrir að brýn þörf er á því að hafa nóg af hjúkrunarheimilum. Það þarf að hafa ýmiss konar hjúkrunarheimili. Það þarf hjúkrunarheimili fyrir þá sem eru rétt að byrja að vilja búa í þessu umhverfi, það þarf að hafa hjúkrunarheimili fyrir þá sem eru langt leiddir og fyrir þá sem eru á einhverju millistigi. Það þarf líka að passa upp á eitt sem er mikið atriði, sem ég hef sjálfur orðið vitni að, sem er að hjón geti ef þau vilja flutt saman þegar komið er að því að annað hvort þeirra þarf að fara á hjúkrunarheimili og búið saman það sem eftir er ævinnar.
Ég hef orðið vitni að því að hjón voru aðskilin og þau fóru að gráta á hverju einasta kvöldi í nokkur ár af því að þau voru skilin í sundur. Það er mjög ófyrirleitið að gera þetta, yppta bara öxlum og segja: Svona er þetta. Því segi ég við ykkur: Það þarf að hugsa vel og vandlega um eldri borgara því að þjóðin er að eldast og við þurfum að byrgja brunninn áður en barnið dettur ofan í hann.