153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:47]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Tómasi A. Tómassyni, 9. þm. Reykv. n., fyrir góða ræðu þar sem hann snerti á mörgu. Ég ætla að staldra við þann hluta ræðu hans þar sem hann kom inn á námslánin og frítekjumarkið og það að stúdentar ættu að geta fengið að vinna eins mikið og þeir vilja með námi. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni. Ég tel, og það er eitthvað sem ég og hv. þm. Inga Sæland sammæltumst um rétt áðan, að það ætti að hreinlega afnema frítekjumarkið. Aftur á móti eru sumir stúdentar sem geta einfaldlega ekki unnið með skóla. Við þurfum að meta þetta eftir atvikum og aðstæðum, það eru t.d. sumir stúdentar sem eru einfaldlega veikir. Það eru bara alls konar aðstæður þannig að þau þurfa á framfærsluláni að halda. Allt í góðu með það, en eins og ég rakti í ræðu minni fyrr í dag er grunnframfærsla framfærslulána að hámarki held ég, ef þú skallar ekki frítekjumarkið, 196.040 kr. sem er ekki nóg til að framfleyta stúdent sem þarf að borga leigu. Segjum svo að þessum stúdent gangi ágætlega í skólanum en samt nær hann ekki að uppfylla skilyrðið um einingarnar til að geta tekið lán. Hann þarf samt sem áður að kaupa sér mat og þarf að lifa af. Því vil ég spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála mér um að það að afnema frítekjumarkið sé ekki nógu stórt skref heldur þurfi líka að hækka grunnframfærsluna.