153. löggjafarþing — 44. fundur, 8. des. 2022.
fjárlög 2023.
1. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspurn Lenyu Rún Taha Karim. Ég er henni algerlega sammála. Það þarf að hækka framfærslulánið svo fólk geti lifað sómasamlegu lífi burt séð frá því hvort það vill vinna með eða ekki. Ég vona bara að svo fari að þeir sem hafa með þetta að gera láti til skarar skríða og hækki það upp í a.m.k. 250.000, jafnvel 300.000, því að þetta er lán en ekki gjöf. Það er alveg óþarfi að láta stúdenta lepja dauðann úr skel og þurfa að skrimta.