153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:50]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Tómasi A. Tómassyni, 9. þm. Reykv. n. — ég skil ekki hvernig forseti fer að þessu, þetta er smá tungubrjótur — fyrir gott svar og það gleður mig mjög mikið að heyra að við erum sammála um hagsmunamál stúdenta. Mig langar að vekja athygli á kröfum stúdenta sem hafa legið fyrir núna í mörg ár og þær eru einmitt að hækka frítekjumarkið. Ég tel að við getum gengið enn lengra í þeim efnum með því að afnema frítekjumarkið og hækka grunnframfærslu framfærslulána. Þetta er þá eitthvað sem við getum vonandi tekið undir hér inni í þingsal, e.t.v. í störfum þingsins, en hver og einn sinnir sínum þingstörfum auðvitað bara eins og þeim lystir. Þetta er bara eitthvað sem ég lagði mjög mikla áherslu á þegar ég var sjálf í stúdentapólitík.

Nú er endurskoðun á Menntasjóði námsmanna á döfinni árið 2023, heildarendurskoðun, og þar er stefnt að því að boða til einhverra breytinga sem ég held að væri skref í rétta átt. Því vildi ég spyrja hv. þm. Tómas A. Tómasson hvort honum þætti það vera skref í rétta átt ef við myndum beita okkur fyrir því að færa lánasjóðskerfið okkar nær því sem er í gildi í Danmörku, þ.e. styrkjakerfi. Eins og hv. þingmaður benti réttilega á áðan er þetta lán en ekki gjöf en það skapar heldur ekki mikinn hvata til þess að stunda nám sitt og klára það. Þannig að ég vildi heyra skoðun hv. þingmanns á því hvort honum þyki rétt að færa lánasjóðskerfið okkar í áttina að styrkjakerfi.