153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:52]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég biðst innilegrar afsökunar, mér fannst líka vanta eitthvað þegar ég þakkaði hv. 3. þm. Reykv. n., Lenyu Rún Taha Karim, fyrir andsvarið. Ég biðst afsökunar á því að ég skyldi hafa feilað á þessu. Til að svara spurningunni þinni: Mennt er máttur og við eigum að gera allt sem við getum til að hjálpa fólki til þess að öðlast þá menntun sem það vill fá. Það bara liggur ljóst fyrir. Ef það eru til betri aðferðir við að aðstoða nema en við höfum í dag þá styð ég þær heils hugar.