153. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:56]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Stutta svarið er já, við skuldum kynslóðinni þetta sem núna er að verða eldri. Ég ætla bara að vitna í orð Ólafs Jóhannessonar sem var hérna á þingi og var forsætisráðherra ef ég man rétt. Hann sagði: Vilji er allt sem þarf. Ef það er vilji til að gera þetta þá er það hægt. Við þurfum bara að framkalla þennan vilja hjá þeim sem ráða. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)