dagskrártillaga.
Virðulegi forseti. Ég tel enga ástæðu til að taka þetta mál af dagskrá þessa þingfundar. Ég vil minna á að þetta er í fimmta skipti sem frumvarp til breytinga á útlendingalögum kemur fyrir þingið þannig að umræðan í þingsal hefur verið veruleg. Þetta mál kom svo inn hér í október og við tókum góða 1. umr. um málið í þessum þingsal sem tók, held ég, alveg tvo heila daga. Við höfum í hv. allsherjar- og menntamálanefnd lagt okkur öll fram við að setja okkur vel inn í þessi mál. Við höfum farið í sérstaka fræðsluferð til Noregs og Danmerkur til að kynna okkur þessi mál betur og hvernig þessum málum er háttað erlendis. Við höfum fengið fjölda góðra umsagna. Við höfum fjallað um þær með málefnalegum og faglegum hætti og nú er þetta mál einfaldlega fullunnið af hálfu nefndarinnar og fyrir liggur nefndarálit meiri hluta þar sem brugðist er við þeim athugasemdum sem fram hafa komið. Ég átta mig á því að skoðanir eru skiptar en lýðræðislegast er auðvitað að þau skoðanaskipti eigi sér stað í þessum þingsal. Það er orðið löngu tímabært að frumvarp um útlendingalögin fái 2. umr. hér í þessum þingsal.