dagskrártillaga.
Forseti. Þetta er dæmigerð dagskrá fyrir þinghlé eða þinglok. Það eru sett mál einhvers staðar framarlega á dagskrá sem er ágreiningur um, augljós ágreiningur, og ástæðurnar fyrir því eru mjög augljósar. En síðan seinna eru sett einhver mál sem eru einhvers konar sleikjó fyrir hina, einhver mál sem allir eru sammála um til að liðka fyrir, klára kannski umdeildu málin svo hin komist að. Þar er t.d. mál um almannatryggingar, eingreiðsla til öryrkja sem öll velferðarnefnd flytur. Auðvitað ætti þetta mál að vera fyrst. Þannig að það segir bara sitt þegar forseti þingsins ákveður að gera það ekki. Það er mjög, mjög undarleg ákvörðun. En ein ástæðan fyrir því er að það þarf víst að búa til smá andrými fyrir ríkisstjórnina til að klára þau mál í nefndum sem eru eftir og svoleiðis og það lítur rosalega skringilega út ef það er ekkert að gera á þingi á meðan. Þannig að við vitum alveg að ríkisstjórnin er ekki tilbúin til þess að klára þingstörfin fyrir þessi jól þannig að þá þarf að hrúga einhverju öðru umdeildu á dagskrá fyrst.