dagskrártillaga.
Virðulegur forseti. Ég að sjálfsögðu styð þessa breytingartillögu heils hugar með þeim röksemdum sem hér hafa verið færðar. Mig langar til þess aðeins að tæpa á því sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefndi hérna áðan. Hún talaði um að það sé verið að leggja þetta fram í fimmta skipti. Í fyrsta lagi er þetta ekki sama frumvarpið og var lagt fram í fyrsta skipti. Það er búið að breyta því, það hafa heilmiklar breytingar verið gerðar á því, viðbætur og annað tekið út.
Í öðru lagi vil ég benda á það að þetta frumvarp hefur aldrei verið afgreitt úr nefnd. Það hefur aldrei verið til í 2. umr. hér í þingsal. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir talar um að það sé kominn tími á að við eigum umræðu um þetta mál en það er augljóst að með því að setja það á þennan stað í dagskránni stendur ekki til að ræða það neitt. Það á ekki að ræða það neitt. Það á að beita fyrir sig framgangi kjarabóta til öryrkja til að drepa umræðu um þetta mál. Það er þess vegna sem málið er sett þarna. Þetta mun tefja gríðarlega mikilvæg mál sem allir eru sammála um hér í þessum þingsal og það er augljóst hver tilgangurinn er.
Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir talar um að það hafi borist fjöldi góðra umsagna. Já, það bárust 17 umsagnir ýmissa aðila (Forseti hringir.) héðan og þaðan sem allar mótmæla frumvarpinu, allar, hver ein og einasta, allar gagnrýna það harðlega. (Forseti hringir.) Það hefur ekkert verið brugðist við neinum þessara athugasemda við vinnslu frumvarpsins í allsherjar- og menntamálanefnd.