dagskrártillaga.
Virðulegur forseti. Það er umhugsunarefni að frumvarp sem er búið að leggja fimm sinnum fyrir Alþingi Íslendinga áður sé jafn illa unnið og þetta frumvarp. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Það er umhugsunarefni. Það er líka umhugsunarefni að frumvarp sem lýtur að mannréttindum fólks skuli ekki metið gagnvart mannréttindakafla stjórnarskrárinnar. Það segir beinlínis í frumvarpinu að það sé ekki tilefni til að gera það. (Gripið fram í: Það verður gert …) — Já, það verður gert núna samkvæmt kröfu minni hlutans. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)
Það er líka umhugsunarefni að umsögn frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna í Norður-Evrópu skuli berast á síðustu dögum í umfjöllun nefndar á ensku — á ensku. Þingmálið á Íslandi er íslenska, líka í nefndunum, en það virðist vera enska í nefndunum í þessu tilviki. Núna á að fara að þýða þetta frumvarp. Það sem við eigum að gera, stjórnskipuleg skylda okkar er að klára fjárlögin. Það stendur í 42. gr. stjórnarskrárinnar. Við eigum að leggja í þá vinnu, klára þá vinnu vel, líka fjáraukann, og fjalla þar um réttindi aldraðra borgara í landinu til að fá eingreiðslu fyrir jólin, líka að Alþingi Íslendinga veiti heimild til fjárveitinga til góðgerðarstofnana sem veita matargjafir fyrir jólin. (Forseti hringir.) Það er úrlausnarefni fram að jólum. Það á að vera það sem við eigum að gera á aðventunni. Ég segi já. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)