153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

Störf þingsins.

[13:52]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Virðulegur forseti. Við heyrum af dæmum um óforsvaranlegar hækkanir leiguverðs sem auðvitað koma illa við allt heiðvirt fólk. Í stjórnmálasögu heimsins er þekkt að vegna erfiðrar stöðu á húsnæðismarkaði hefur oft verið gripið til handahófskenndra inngripa sem eru vel meint og hljóma vel, eins og t.d. leiguþak, en sem geta gert og hafa gert stöðuna enn verri fyrir þá sem síst skyldi. Framboðsvandi húsnæðis undanfarinna ára hefur þrengt stöðuna talsvert. Vinstri stjórn eftirhrunsáranna tvöfaldaði skatta á leigutekjur sem þrýsti auðvitað upp leiguverði sem markaðurinn var lengi að jafna sig á, en ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokksins, sem þá tók við, sneri þeirri þróun við og gott betur. Það eru leiðir, forseti, sem við ættum að horfa til. Fjárlögin nú til að mynda gera varanlega hækkun húsnæðisbóta sem var sett á hér í vor til þess að bregðast við verðbólgunni. Nú er verið að gera hana varanlega miðað við verðlagsspá næsta árs. Það er vel.

Forseti. Það eru allir sammála um að það er ábyrgðarhluti okkar hér að tryggja húsnæðisöryggi í formi skilvirks húsnæðismarkaðar. En það er líka ábyrgðarhluti að horfa þar til heildarlausna sem skila raunverulegum árangri en grípa ekki til hljómfagurra skyndilausna sem því miður geta komið verst niður á þeim sem mesta aðstoð þurfa.