Störf þingsins.
Herra forseti. Ekki alls fyrir löngu voru allmargir drengir í Menntaskólanum við Hamrahlíð sakaðir um kynferðislega áreitni eða kynferðislegt ofbeldi og ráðherra blandaði sér í málið með yfirlýsingum. Skólastjórnendur voru gagnrýndir mjög harkalega fyrir að vera ekki nógu yfirlýsingaglaðir en nú hefur eins konar rannsóknarnefnd, ráðgjafahópur held ég að sé kallað, farið yfir þessi mál og komist að því að í a.m.k. í einhverjum tilvikum hafi drengir verið ranglega sakaðir um þessa háttsemi og með hreinum uppspuna. Þetta er auðvitað hræðilegt fyrir þá sem í því lentu en þetta er líka hræðilegt fyrir raunveruleg fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis í þessum skóla og annars staðar og áminning um mikilvægi þess að dæma ekki of snemma í svona málum heldur rannsaka þau og komast að því hvað er rétt og hvað ekki. Við stjórnmálamenn ættum, herra forseti, að hafa þetta í huga, að dæma ekki of snemma, því að það getur hvort tveggja haft skelfilegar afleiðingar fyrir þá sem eru ranglega sakaðir um eitthvað en einnig fyrir raunveruleg fórnarlömb sem þá lenda í því að vera hugsanlega síður trúað. Þetta er gömul og gild regla sem ég held að við ættum að halda í heiðri, stjórnmálamenn sem aðrir, að dæma ekki of snemma.