Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Því er gjarnan haldið á lofti að Ísland sé ríkasta land í heimi af svokölluðum endurnýjanlegum grænum orkugjöfum og þjóðin hefur verið dálítið stolt af. Við erum nefnilega heimsmeistarar í ansi mörgu, sérstaklega þegar sérhagsmunirnir sjálfir halda um reiknistokkinn. Þegar grannt er skoðað í þessum efnum eigum við hins vegar bara eitt staðfest heimsmet á alþjóðlegum mælikvarða og það er mesta orkuframleiðsla í heimi á hvert mannsbarn. Þar stökkvum við helmingi hærra en næsta þjóðríki á eftir. Svo eigum við annað heimsmet, reyndar óstaðfest vegna skorts á rannsóknum, en það er mesta orkusóun á hvert mannsbarn. Við erum sömuleiðis ein þjóða heims sem sólundar yfir 80% af orkuauðlindum okkar til orkufrekrar mengandi stóriðju. Nú hefur bæst í liðið hinn nýi óhefti og frjálsi orkugeiri með grænþvottarstimpilinn á lofti, merkir sér allt, sama hvaða ósómi er undir. Nú eigum við grænasta ál í heimi framleitt með grænustu orku í heimi og svo eigum við auðvitað grænustu gagnaver í heimi sem grafa eftir grænustu rafmyntum í heiminum. Og svo erum við með áform um græna orkugarða sem flokka mætti kannski frekar undir efnaverksmiðjur. Virðulegi forseti. Vindorkuáform sem nú hafa verið sett á svið hér á landi eru af áður óþekktri stærð án þess að sýnt hafi verið fram á þörfina. Allt er þetta undir grænum formerkjum þrátt fyrir að óafturkræf náttúruspjöll hafi verið sett á dagskrá með slíkum vindorkuverum. Ef markmiðið er að skapa sátt um vindorkuver hér á landi þá sýnist mér því miður stefna í algjört óefni eins og staðan er. Atgangur orkugeirans er einfaldlega allt of mikill þegar vanmáttur sveitarfélaga er annars vegar og ekki til að dreifa haldbærum lögum eða reglum í málaflokknum. Núna þurfum við ekki á að halda erlendu stórkapítali í bakgarðinum okkar sem nú þegar er farið að kljúfa samfélög (Forseti hringir.) víða um land þar sem íbúum hefur verið stillt upp við vegg á íbúafundum þar sem aðeins hlið orkugeirans er dregin upp. (Forseti hringir.) En fyrst og síðast er verið að ráðast hér á okkar verðmætustu auðlind með þeim grófustu iðnaðaráformum sem sett hafa verið á svið í íslenskri náttúru frá upphafi.