Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Maðurinn minn missti sig aðeins í jólaljósainnkaupum á aðventunni og það verður enginn runni ósnertur hjá okkur þetta árið. Jólaljósin í skammdeginu á Íslandi eru eitt af mörgu sem er í uppáhaldi hjá mér við jólin. Ég kom svo heim í gær og það var ískalt heima. Ég gekk þá bara á ofnana og skrúfaði aðeins upp og kveikti á einum sem hafði verið óhreyfður. Þetta hljómar hversdagslega en er mjög fjarri aðstæðum flestra nágranna okkar í Evrópu. Það er nefnilega orkukrísa í Evrópu og þar leggjast allir á eitt við að spara orku. Smitskömm hefur vikið fyrir orkuskömm. Við Íslendingar erum hins vegar í algjörri forréttindastöðu í þessum málum og tengjum illa við bága stöðu á meginlandinu. En staða okkar kom ekki af sjálfu sér. Hún datt ekki af himnum ofan. Hér höfðu íslensk stjórnvöld, bæði ríki og borg, hugrekki til að fara í orkuskipti á seinustu öld. Þótt þau hafi verið umdeild þá efast enginn um þau í dag. Glæfralegar ákvarðanir forsvarsmanna Evrópusambandsins leiddu hins vegar til þeirrar stöðu álfunnar að hún er háð rússneskri orku. Íbúarnir súpa nú seyðið af því. Þótt mér leiðist ekki að skammast í Evrópusambandinu er mikilvægt að við leggjum Evrópu lið og deilum með þeim þekkingu okkar á orkumálum. (ÞKG: Líka Bretlandi?)Það er sameiginlegt markmið okkar allra að vinna gegn loftslagsbreytingum og bæta orkuöryggi. Hér heima eru síðan grænu orkuskiptin fram undan, risastórt verkefni, og við höfum sofnað á verðinum undanfarin ár. Við þurfum að forgangsraða orkuskiptum og leggjast á eitt við að auka framleiðslu endurnýjanlegrar orku. Ástandið í Evrópu … (Gripið fram í.) — ástandið í Evrópu er brýn áminning um það.