Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í fjárlagafrumvarpi ársins 2023 er gert ráð fyrir að samningur um NPA verði framlengdur til næstu tveggja ára með það að markmiði að ná þeim 172 samningum sem gert var ráð fyrir að næðust á þessu ári. Fjárframlög dugðu ekki fyrir þeim fjölda og því fer fjarri að upphafleg markmið hafi náðst. Nú á hins vegar að gera aðra tilraun með framlengingu til næstu tveggja ára og gert ráð fyrir að á árunum 2023 og 2024 verði veitt framlag til að uppfylla efni bráðabirgðaákvæðis um allt að 145 samninga á árinu 2023 og allt að 172 samninga á árinu 2024. Samkvæmt umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 6. desember var meðalkostnaður NPA-samninga 30,6 millj. kr. árið 2021. Því má ætla að nú þegar sé um vanáætlun að ræða samkvæmt fyrirliggjandi frumvarpi. Þar er gert ráð fyrir að meðalkostnaður á samning sé 30 millj. kr. fyrir árið 2023 þegar það liggur fyrir að meðalkostnaður samninga var 600 þús. kr. hærri fyrir tveimur árum. Því er afar ólíklegt, virðulegi forseti, að markmiði um 145 samninga verði náð á árinu 2023 með þeim 375 millj. kr. sem mælt er fyrir að dugi til að mæta þessum 50 samningum. Kjarasamningar þeirra sem vinna í þessum geira eru lausir og ekki liggur fyrir hver útkoman verður og því er það ljóst nú þegar að ekki verður um 50 viðbótarsamninga að ræða á næsta ári. Þá má einnig spyrja þeirrar spurningar: Hvers vegna er verið að kvótasetja framlög til hóps sem þarf svo sannarlega á þessari þjónustu að halda?