153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

Störf þingsins.

[14:09]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Nýtt varaflugvallargjald. Fyrir fjórum árum síðan skilaði starfshópur sem sá sem hér stendur veitti formennsku af sér skýrslu undir heitinu Uppbygging flugvallakerfisins og efling innanlandsflugsins sem almenningssamgangna. Í starfshópnum sátu einnig Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar, og Ingveldur Sæmundsdóttir, aðstoðarmaður samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Fyrir starfshópnum lágu tvö stór úrlausnarefni. Annars vegar að bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu höfuðborgarinnar með þeim hætti að innanlandsflugið standi undir nafni sem almenningssamgöngur. Í almennri umræðu hefur verið talað um skosku leiðina í þessu sambandi, í dag betur þekkt sem loftbrúin. Hins vegar sneri seinna verkefnið að því hvernig best væri að standa að viðhaldi og nýframkvæmdum á flugvöllum landsins. Verkefnið í hnotskurn kemur til af því að gamla varaflugvallargjaldið var lagt af í maí 2011 en við það hrundi tekjustofn til nýframkvæmda og viðhalds á flugvöllum landsins. Fjármagnið sem varið var til flugvalla landsins lækkaði að meðaltali úr 1.400 milljónum í 350 milljónir á verðlagi ársins 2017. Í skýrslunni var lagt til að sett yrði á 100–300 kr. varaflugvallargjald á hvern fluglegg. Í samráðsgátt stjórnvalda er nú komið fram frumvarp þar sem lagt er til að varaflugvallargjald sé tekið upp og lagt til að 200 kr. varaflugvallargjald sé lagt á flugmiða fyrir hvern fluglegg. Það hefur verið ljóst um árabil að niðurlagning varaflugvallargjaldsins í maí 2011 var mikið óheillaskref fyrir íslenska flugvallakerfið og það ástand sem skapaðist í framhaldinu var aldrei bætt. Fjármögnun flugvallakerfisins hefur verið í miklum ólestri í rúman áratug, frá því að gamla varaflugvallargjaldið var lagt af. Varúðarorð þeirra sem best þekktu til voru höfð að engu. Markmið nýs varaflugvallargjalds er til að bæta úr þessari stöðu. Hér er rétt að benda á að það sem nú er lagt til (Forseti hringir.) er margfalt lægra á hvern flugfarþega en gamla varaflugvallargjaldið. (Forseti hringir.) Varaflugvallargjaldið snýst fyrst og fremst um flugöryggi.