Störf þingsins.
Herra forseti. Fjölmiðlamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson skrifaði frétt á vefinn vísir.is fyrir tveimur dögum síðan. Þar segir, með leyfi forseta:
„Í sömu vikunni og öll spjót stóðu á dr. Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra vegna stýrivaxtahækkunar voru sendibílastjórar að keyra mublur og fínerí í stórum stíl inn í Seðlabankann. Sendibílastjórum sem Vísir heyrði í þótti þetta skjóta skökku við; Ásgeir vildi með stýrivaxtahækkuninni skikka fólk til þess að spara, hætta óráðsíu og sukkinu, táslumyndir frá Tene virtust eitur í beinum seðlabankastjóra en á sama tíma voru þeir að burðast með húsgögn fyrir milljónir í Seðlabankabygginguna.“
Umfangsmiklar breytingar á Seðlabankanum kosta sitt og fram kemur í fréttinni að þær muni kosta um 3 milljarða kr. Kannski ætti seðlabankastjóri að líta í eigin barm áður en hann sendir almenningi kaldar kveðjur.
Herra forseti. Ég hef beðið í tvo og hálfan mánuð eftir svörum frá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um kostnaðinn vegna sameiningar Fjármálaeftirlits og Seðlabanka Íslands. Ég óskaði eftir sundurliðun; hvað fór í launakostnað, kostnað vegna breytinga á húsnæði, kostnað vegna breytinga á fjármögnun fjármálaeftirlitsins og sundurliðun á öðrum mögulegum viðbótarkostnaði ótilgreindum. En ég hef engin svör fengið. Hv. þm. Logi Einarsson lagði fram fyrir um sjö vikum fyrirspurn um tekjur og eignir landsmanna árið 2021, spurningum sem auðveldlega er hægt að svara. Þarna eru upplýsingar sem eru mikilvægar í umræðunni um fjárlögin en hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra svarar engu. (Forseti hringir.) Getur forseti útskýrt hvers vegna það tekur hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra svo langan tíma að svara einföldum spurningum?