153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:54]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður spyr fyrst um húsnæðiskerfið og hvort einhver von sé til þess að þessi ríkisstjórn muni gera eitthvað í þeim málum. Ég held að það sé augljóst að hún ætlar ekki að gera það. Það er verið að draga úr stuðningi við almenna íbúðakerfið; skera þar niður um helming, ef ég man rétt. Það á greinilega ekki að ýta undir það sem er þó kerfi sem nálgast það að geta kallast einhvers konar félagslegt kerfi. Nú er verið að tala um að reyna að ná upp í að 5% af húsnæði verði félagsleg með þessum merkjum en í hinum norrænu ríkjunum eru það um 20% og þar yfir og hefur verið í meira en hundrað ár. Kerfi eins og í Danmörku sem hefur staðist tímans tönn, alls konar leigukerfi, búseturéttarkerfi o.s.frv. sem eru góð og við eigum að líta til. En það hefur ekki verið gert hér, því miður.

Varðandi framfærsluuppbótina og að taka skerðingarhlutföllin af, þá held ég að það sé mjög góð hugmynd. Það ætti að vera hvetjandi. Hins vegar er hægt að horfa á kostnaðarhliðina ef maður tekur ekki tekjurnar inn á móti og ef þessi 65% eru sett niður í 50% þá kostar það 2 milljarða. En auðvitað fáum við á móti. Það er þannig. Það er ekki lokaniðurstaðan. Fyrir nú utan það að ef það er hvatning til að fólk fari í virkni þá er ekki hægt að meta lífsgæðin til fjár.