153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:56]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Oddnýju Harðardóttur fyrir andsvarið. Ég get ekki annað en verið innilega sammála hv. þingmanni. Hún talaði líka um að hækka þyrfti húsnæðisbætur og barnabætur þannig að þær nái 10%. Það setur alltaf að manni aulahroll og kuldahroll og skelfingu þegar verið er að tala um að hækka eitthvað í kerfi sem veldur því að þeir sem eru fastir í almannatryggingakerfinu lenda alltaf í skerðingum við hverja einustu hækkun. Það skiptir engu máli hvað er hækkað. Það er einhvern veginn alltaf hægt að hengja á fólk skerðingar. Við höfum tekið eftir því að þegar fjármálaráðherra er að hæla sér af þessum rosalegu hækkunum í kerfinu, sem ríkisstjórnin hefur staðið fyrir, hefur það valdið því að hér er fólk sem er með 240.000 kr. útborgaðar og býr í hjólhýsi vegna þess að það hefur ekki efni á húsnæði. Varla hafa þessir einstaklingar fengið þessar gífurlegu hækkanir. Þeir eru líka sviptir heimilisuppbótinni sem hlýtur að teljast ofbeldi gagnvart þeim einstaklingum sem eru að reyna að bjarga sér.