153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:01]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Norrænu ríkin eru þekkt fyrir meiri jöfnuð en önnur samfélög og skora hæst á öllum listum yfir hvar er best að búa, hvar fólki líður best, þar eru minnstu glæpirnir og allt þetta. Hugmyndin með barnabótakerfinu er að jafna stöðu barnafólks og hinna sem ekki eru með börn á framfæri. Þó að það sé auðveldlega hægt að réttlæta það, eins og hv. þingmaður segir, að setja aukna fjármuni inn í kerfið í þessu ástandi ætti það að vera viðvarandi, eins og er í hinum norrænu ríkjunum, þá virkar þetta saman. Tekjuskatturinn — þar koma tekjuviðmið reyndar inn þannig að það er þrepaskipt. Þú borgar meira ef þú ert með hærri tekjur. Tekjuskattskerfið er ekki eins í öllum hinum norrænu ríkjunum en alls staðar eru fleiri þrep en við erum með og sérstakt hátekjuskattsþrep. Það eru engar tekjuskerðingar á barnabótum því að tekjuskerðingin er tekin í tekjuskattinum. Þetta þarf því auðvitað að virka saman til að þetta gangi upp til jöfnunar til lengri tíma. En hin norrænu ríkin eru líka, til viðbótar þessu, að setja aukna fjármuni til barnafjölskyldna til skemmri tíma í ástandinu eins og það er.