153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:03]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. En hvað með það að húsaleigubætur séu, þegar allt kemur til alls, styrkur til þeirra sem eru að leigja, til leigusala, en ekki til leigjenda? Það endi bara á því að leigan hækki til lengri tíma þegar stuðningur er viðvarandi. Ef það væri tímabundinn stuðningur, t.d. vegna aðstæðna sem myndast í hárri verðbólgu eða vegna húsnæðisaðgerða stjórnvalda o.s.frv., væri eðlilegt að koma til móts við það gagnvart leigjendum án þess að það detti sjálfkrafa yfir til leigusalanna. Og ef það er tímabundið þá er þetta nokkurn veginn að brúa bilið frá því að skekkjan kemur upp og þar til hægt er að lagfæra hana í almennum samningaviðræðum.