fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég átta mig á því sem hv. þingmaður er að velta fyrir sér. Það er einmitt út af þessu, sem hv. þingmaður nefnir, sem verkalýðshreyfingin hefur verið að kalla eftir leigubremsu. Hér hefur verið talað um leiguþak eins og er í mörgum löndum og auðvelt að finna góðar fyrirmyndir að slíku. Ég held að það sé augljóst, með ýktum dæmum sem verið hafa í fjölmiðlum, um miklar hækkanir yfir áramótin, sem fólk með lágar tekjur og millitekjur ræður ekki við, að þess þarf. Það er búið að ógna velferð þeirra og húsnæðisöryggi með slíku okri. Við þurfum að verja leigjendur fyrir þessu. Leigjendur eru oftar en ekki með minni tekjur en hinir sem eiga húsnæði og þarna þurfum við að stíga inn í.