153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:06]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hún bar vott um góða þekkingu á velferðarmálum og málefnum öryrkja og aldraðra eins og kom líka fram í svörum við andsvörum ræðumanna hér áðan. Málið er að tillögu Flokks fólksins og annarra stjórnarandstöðuflokka í fyrra, um 200.000 kr. frítekjumark öryrkja, var hafnað af ríkisstjórnarflokkunum við afgreiðslu fjárlaga þessa árs. Nú er sama tillaga komin fram í ár, um 200.000 kr. frítekjumark öryrkja. Á bls. 40 í nefndaráliti meiri hlutans segir:

„Hækkun frítekjumarks vegna atvinnutekna er hluti af heildarendurskoðuninni og mikilvægt skref til að ryðja úr vegi hindrunum til atvinnuþátttöku örorkulífeyrisþega.“

Síðan segir, með leyfi forseta:

„Því er hækkun frítekjumarks vegna atvinnutekna nauðsynlegur hluti af endurskoðun örorkulífeyriskerfisins og mikilvægt að hækkunin taki gildi í byrjun árs 2023 til að búa til nauðsynlegan hvata og réttan jarðveg fyrir verkefni tengd aukinni atvinnuþátttöku fólks með mismikla starfsgetu.“

Spurningin er þessi: Hvað hefur breyst? Er ekki alveg jafn knýjandi þörf og fyrir ári til að ryðja úr vegi hindrunum til atvinnuþátttöku örorkulífeyrisþega, eins og var þegar við lögðum fram okkar tillögu í fyrra? Hvað hefur breyst? Hefur eitthvað raunverulega gerst í kerfinu varðandi endurskoðunina? Það er alveg jafn mikil knýjandi þörf á að gera þetta. Það hefði verið hægt að samþykkja þetta í fyrra og allt orðið gott og blessað (Forseti hringir.) þó að heildarendurskoðun hefði átt sér stað. Hver eru tengslin við heildarendurskoðunina, að þetta mál sé komið fram núna en ekki í fyrra?