fjárlög 2023.
Frú forseti. Nú er ég ekki í þeirri stöðu að ég geti svarað fyrir stjórnarflokkana í þessu máli. Ég hef hins vegar haft það á tilfinningunni, þegar verið er að ræða kerfið allt, ekki bara frítekjumarkið, að það hafi ekki mátt gera neitt og að menn hafi ekki viljað stíga nein skref til að bæta kerfið vegna þess að öryrkjar hafi ekki viljað taka upp starfsgetumat. Mín tilfinning er sú að stjórnvöld hafi viljað þrengja að öryrkjum til þess að þeir myndu gefa eftir og fara þá leið. Mér heyrist hins vegar vera kominn svolítið annar tónn í þá umræðu alla. Orðið starfsgetumat er ekki í umræðunni núna. Það má vera að það sé það sem hafi breyst, ég veit það ekki. En alla vega þá mun þetta 200.000 kr. frítekjumark gagnast einhverjum. En besta kjarabótin væri að hækka grunninn og þar sem kjaragliðnun er upp á mest 90.000 kr. frá lægstu launum launamanna finnst mér það vera stóra skrefið sem við eigum að stíga að brúa þetta bil.