153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:10]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið sem mér fannst mjög áhugavert. Það virðist einhver viðhorfsbreyting vera að eiga sér stað og vonandi eru ríkisstjórnarflokkarnir farnir frá þessu varðandi starfsgetumatið. Ég tel eðlilegt að fólkið sjálft, öryrkjarnir sjálfir, fari út á vinnumarkaðinn og finni út þau störf sem það hefur getu og vilja til að vinna við en að það verði ekki einhverjir sérfræðingar sem séu að meta þetta fyrir fram. Það er miklu einfaldara að taka þetta með þeim hætti að ryðja úr vegi hindrunum til atvinnuþátttöku örorkulífeyrisþega, þ.e.a.s. að þeir fái notið atvinnufrelsis til að finna út hvernig þeir geti aflað sér tekna. Það tel ég vera grundvallaratriði. Ég er algjörlega sammála hv. þingmanni um að það verður að taka á kjaragliðnuninni. Það hefur því miður ekki verið gert. Mér finnst þetta vera aðskilin mál, tekjuskerðingarnar og að 69. gr. sé framfylgt. En sér hv. þingmaður einhverja viðhorfsbreytingu varðandi kjaragliðnunina? Er eitthvað að gerast þar, einhver viðhorfsbreyting í grundvallaratriðum eins og mér fannst hv. þingmaður lesa úr þessu varðandi starfsgetumatið?