153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:12]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég verð aftur að svara því á þann veg að ég get ekki svarað fyrir stjórnarþingmenn. Ég get ekkert gert annað en vonað að um viðhorfsbreytingu sé að ræða. Stefán Ólafsson og Efling hafa reiknað út hvað það myndi kosta að hækka frítekjumarkið upp í 200.000 kr., frítekjumark fyrir lífeyristekjur upp í 100.000 kr. og brúa þetta bil, taka á kjaragliðnuninni. Það var áður en það breyttist fyrir þá sem eldri eru. Það var reiknað út að sá pakki allur myndi kosta 33 milljarða. Við í Samfylkingunni settum þetta upp í fjármálaáætluninni vorið 2022, hvernig hægt væri að ná þessu á fimm árum, og við getum þetta auðveldlega. Mér finnst það vera svartur blettur á velferðarkerfi okkar að við, sem erum í þessum sal, skulum skammta þeim sem erfiðast eiga eitthvað sem enginn getur lifað af. Við verðum að taka á þessu og það getur verið ágætismarkmið að miða við lægstu laun. Ég tala nú ekki um þegar bilið er svona stórt, þá verðum við að taka það í skrefum. En við verðum að sýna í fjármálaáætlun að við ætlum að fara þessa leið. Það myndum við gera, minn flokkur og flokkur hv. þingmanns, er ég viss um, ef við værum við ríkisstjórnarborðið. Við getum ekki gert annað en að hvetja til þess og krefjast þess og vona að stjórnarflokkarnir verði sama sinnis.