153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:06]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni, ég get alveg tekið undir hennar sjónarmið. Mig langaði líka að ræða það við hv. þingmann, vegna þess að ég veit að hún var mótfallin sölunni á hlut ríkisins í Íslandsbanka, hvernig það horfi við henni að gert sé ráð fyrir heilum 75 milljörðum sem komi inn vegna áframhaldandi sölu á Íslandsbanka þegar það er algerlega í lausu lofti hvernig stendur til að gera það. Við erum báðar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að fjalla um skýrslu ríkisendurskoðanda um sölumeðferðina hina síðari en það kemur fram af hálfu fjármálaráðuneytisins að til standi að búa til eina stóra ríkisstofnun sem fari með eignarhlut ríkisins í öllum opinberum hlutafélögum. Ég velti fyrir mér hvernig það horfi við henni að setja eigi á fót heila nýja stofnun sem fari með þetta viðamikla hlutverk og selja bankann á einu ári?