fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Ég tek bara algerlega undir með hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni. Ég hef stundum sagt það að það skipti máli, hvað á ég að segja, hvar maður staðsetur sig í málum og hver er forgangsröðunin, hún skipti mestu máli. Ef forgangsröðun þín er þannig að heimilin eru í forgangi þá tekur þú allt aðrar ákvarðanir en ef fjármálafyrirtækin eru í forgangi. Þú tekur bara allt aðrar ákvarðanir. Ákvarðanir þessarar ríkisstjórnar og reyndar bara allra ríkisstjórna, alla vega frá hruni, þó að ég fari ekki lengra aftur, hafa allar verið með fjármálafyrirtæki í forgangi og tekið allar ákvarðanir út frá því. Það er líka bara eins og ríkisstjórnin og ráðherrar og fólk sem er í þeim meiri hluta skilji bara ekki hvað fátækt er, að það skilji það ekki að það sé fólk sem lifir í þessari fátækt. Það er eins og það haldi að við séum bara alltaf að ýkja, sem við erum ekki að gera þegar við erum að tala um þessa hluti.
Ég hef alveg sagt frá því t.d. að ef ég væri enn þá á kennaralaunum — ég var náttúrlega að kenna alveg þangað til ég fór inn á þing. Ég held ekkert að alþingismaðurinn Ásthildur Lóa sé eitthvað meira virði en kennarinn Ásta Lóa. En ég borga núna jafn mikið í skatta og ég fékk í laun. Ég væri komin í virkileg vandræði sem kennari með allar þessar álögur sem eru í gangi. En ég á eftir að halda mér á floti af því að ég er komin hingað, af því að ég er komin með hærri tekjur. Ég er komin með tekjur yfir meðaltali, alla vegana það. Við sem erum hér megum ekki gleyma okkur í einhverjum fílabeinsturni og halda að allir geti leyft sér, eða að allt sé í lagi hjá öllum af því að það er allt í lagi hjá okkur. Það er ekki svo.