153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:15]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, brunaútsölur eftir hrun, þær voru margar. Fólk sem átti fé stóð vel, það fékk afskrifað og eiginlega var þetta mjög oft fólkið sem hafði valdið hruninu, hafði bara, hvað á ég að segja, spilað rassinn úr buxunum — afsakaðu orðbragðið, forseti — hérna á Íslandi og því fór sem fór. Þessu fólki var bjargað, það skuldaði nógu mikið. En þeir sem voru með húsnæðislán; engin miskunn, ekki nein. Það var fjöldi fólks sem græddi á hruninu og það er enn þá að skara eld að eigin köku. Það sama á við hér og ég sagði hérna áðan í sambandi við eigendur Ölmu: Ég vil ekki einu sinni reyna að skilja hugarfar þessa fólks. Mig langar ekki til að skilja það. Ég bara fordæmi það, þessa hugsun að fá aldrei nóg og vera alltaf tilbúinn að láta þá sem lítið hafa bara þjást fyrir — ég veit ekki hvað — fyrir þína ofgnótt.