fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir hans ræðu og hann kom inn á ýmsa hluti eins og sendiráð og annað. Þið verðið að fyrirgefa, ef það væri verið að spara í sendiráðum til að hjálpa fólki sem er í neyð þá væri ég alveg til í að taka þann slag. Hann var að tala um að það væri ekkert sendiráð á Spáni. Ég spyr bara: Væri ekki þjóðráð að setja upp útibú Seðlabankans á Tene og senda seðlabankastjóra bara þangað? Taka af honum rafræn skilríki þannig að hann geti ekkert haft samband hingað til baka og þá myndi peningastefnunefndin kannski taka sig til og lækka vexti um svona 3–4% þannig að það yrði aðeins skárra fyrir þá verst settu og unga fólkið sem væri að kaupa.