fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Ekki hægt að bjarga öllum og stjórnvöld voru a.m.k. að reyna að gera eitthvað — ég veit ekki, það var aðeins tónninn í þessu. Í fyrsta lagi var það alla vega ekki hlutverk stjórnvalda að gera illt verra og þau gerðu það ítrekað, alltaf. Það voru eiginlega allar aðgerðir þannig að það var bara verið að lengja í snörunni og afleiðingarnar komu örlítið síðar. Annað er að ég er ekki sammála því að ekki hefði verið hægt að bjarga öllum. Við erum með húsnæðislán, þau eru til 40 ára. Þarna kemur eitthvert svona absúrd ástand upp — af hverju þarf að láta þetta eina sem gengur yfir á nokkrum mánuðum valda því, þegar þú ert með 40 millj. kr. lán, að þú missir húsnæði þitt? Þarf ekki bara að finna aðrar lausnir? Þær eru ekki þær að setja þetta í 110% og moka peningum inn í fjármálakerfið. Það er hægt að finna aðrar lausnir. (Forseti hringir.) Við skulum aldrei gleyma því að þeir sem ollu hruninu hafa grætt stórkostlega á því síðan og algerlega út af aðgerðum stjórnvalda.