fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og allt það sem í henni var. Þetta er áhugaverð umræða sem við erum í um fjárlög og ég veit að Píratar hafa flutt ansi margar ræður í þessari umræðu um fjárlögin og ég ætla svo sem ekkert endilega að staldra við í þeirri ræðu sem hér var flutt heldur kannski meira aðeins almennt. Mig langaði að spyrja hv. þingmann af því að núna er það þannig að við í Viðreisn erum að fara að leggja til að það verði settir peningar í vaxtabætur. Það er mín skoðun að öflugt vaxtabótakerfi sé óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að vera með þennan gjaldmiðil sem við erum með, íslensku krónuna, rétt eins og ég tel að verðtryggingin sé óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að vera með íslensku krónuna þótt ég viti að við séum ekki öll sammála um það. En þá langaði mig að spyrja hv. þingmann um það, einmitt af því að við erum svo mikið að tala um vexti og verðbólgu auðvitað í þessari fjárlagagerð, hvort hann deili þessari skoðun minni, (Forseti hringir.) að vaxtabótakerfið á Íslandi þurfi óhjákvæmilega að vera öflugt og stórt vegna þess að við erum með þennan gjaldmiðil sem við erum með en ekki einhvern stærri og stöðugri.