fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það hefur lengi verið sagt, m.a. af hagfræðingum, að það tvennt sem þarf að byggja upp þegar svona lagað gerist sé nákvæmlega vaxtabótakerfið og barnabótakerfið, það séu tvö af þeim tólum sem hjálpa best þeim sem minnst mega sín. Já, ég held að ég geti verið sammála hv. þingmanni um að það er sérstaklega mikilvægt að hafa þessi kerfi þegar við búum í vaxta- og verðbólguumhverfi sem m.a. er hér vegna þess að við erum með okkar eigin gjaldmiðil. Hvort það sé betra að vera með evruna er svo allt annað mál sem við þyrftum að finna út á örugglega miklu lengri tíma en einni mínútu. En svo sannarlega er ég sammála því að vaxtabætur eru ein leið til þess að hjálpa heimilunum.