153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:47]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið og á þeim 53 sekúndum sem ég á eftir munum við leysa öll efnahagsvandamál landsins. Ég lærði eitt mjög snemma í mínu starfi þegar ég fór um heiminn að vinna við hjálparstarf. Það var að ég get ekki verið sérfræðingur í öllu en ég get hlustað á sérfræðinga. Ég get fengið þeirra álit, jafnvel frá nokkrum, og mismunandi álit, og síðan ef ég var sá sem þurfti að taka ákvarðanirnar þá tók ég þær út frá því sem var verið að segja mér. Mér finnst hins vegar dálítið oft í því sem ég hef lesið í þeim fjárlögum sem ég hef flett í gegnum, og þau eru alla vega orðin tvö stykki núna, að það sé meira verið að fara eftir því hvaða hagsmuni vinir og vandamenn hafa heldur en hvaða hagsmuni þjóðin hefur.