153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:48]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Herra forseti. Við ræðum hér mikilvægasta frumvarp þingvetrarins, frumvarp til fjárlaga þar sem ríkisstjórnin útdeilir gæðunum. Blindrafélagið hefur sent fjárlaganefnd Alþingis eftirfarandi umsögn um fjárlagafrumvarpið 2023 vegna fjárlaga til Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Ég veit ekki hvort þið tókuð eftir því hversu ofboðslega langt þetta nafn er. Ég hugsa að þegar ég var hálfnuð að lesa það hafi ég sennilega verið búin að missa einbeitinguna, enda hefur Flokkur fólksins lagt fram breytingartillögu sem lýtur að breytingu á lögunum og hún lýtur að því að einfalda nafnið, þetta þunga mikla nafn Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, og breyta því einfaldlega í Sjónstöðina. Það var nú ekki mikið flóknara en það. Það ætti ekki að vefjast fyrir stjórnarflokkunum eða ríkisstjórninni að samþykkja það.

Með leyfi forseta ætla ég að lesa hér upp úr umsögn Blindrafélagsins um fjárlögin:

„Blindrafélagið gerir athugasemd við fjárlög til Sjónstöðvarinnar eða eins og hún nefnist í lögum Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Töluvert fjármagn vantar upp á til að Sjónstöðin geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu.

Notendum stöðvarinnar hefur fjölgað undanfarin ár og þjónustuþörf þeirra vaxið. Árið 2009 voru notendur 1.200 á skrá en eru nú 1.700. Helst má sjá fjölgun í tengslum við börn með heilatengda sjónskerðingu en einnig má rekja hana til aukinnar vitundarvakningar á meðal augnlækna á sjónskerðingu eldra fólks.

Sjónstöðin hefur undanfarin ár verið rekin með halla og er uppsafnaður halli síðastliðinna ára orðinn 40 milljónir.

Frá árinu 2009 hefur orðið um 12% aukning á fólki með annað móðurmál en íslensku. Í dag eru þetta um 100 einstaklingar og fer þeim fjölgandi með tilkomu aukins fjölda flóttamanna. Tekið er tillit til greiðslu túlka þegar kemur að heilbrigðismálum en ekki er tekið tillit til túlkaþjónustu þegar kemur að t.d. kennsluráðgjöf. Sú kennsla tekur lengri tíma og gengur hægar.“

Nú ætla ég aðeins að staldra hér við. Það er aðeins eitt sem ég get sagt. Ef Þjónustu- og þekkingarmiðstöð hefði ekki verið til staðar fyrir mig á sínum tíma þá stæði ég ekki hér. Það er fyrir starfsfólkið og alla þá sem tóku utan um mig á þeim tíma sem mér varð kleift að fara í nám, ég hafði flosnað upp úr því margoft vegna þess að ég gat aldrei lesið bókina. Það var fyrir Þjónustu- og þekkingarmiðstöð og fyrir Blindrafélagið og fyrir góða augnlækna, ráðgjafa í skólunum og annað slíkt, og með samstilltu átaki, sem mér var gert mögulegt að stunda nám og afla mér þeirrar menntunar sem ég er stolt af að hafa í dag þótt ég hefði gjarnan viljað halda lengur áfram, en ég stoppaði eftir BA-próf í lögfræði. Ég ætlaði að fara í meistaranám. Ég ætlaði mér að sinna þeim sem áttu bágt. Ég ætlaði að gefa öllum kost á því að leita sér lögfræðilegrar aðstoðar. Ég ætlaði ekki að maka krókinn á því sjálf. En í staðinn kemur upp neyð í samfélaginu sem ég gerði mér enga grein fyrir að væri eins umfangsmikil og raun ber vitni, því er lýst yfir að 9,1% barna búi við mismikla fátækt árið 2016. Þess vegna varð Flokkur fólksins til.

Það er jú til háborinnar skammar, virðulegi forseti, ef verið er að spara aurinn þegar kemur að því að taka utan um fólk sem þarf á aðstoð að halda, taka utan um fólk og aðstoða það t.d. í sambandi við það að geta séð betur með hjálpartækjum en raunverulega geta þeirra stendur til. Mig langaði þar af leiðandi að segja: Það er Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir sjónskerta og blinda einstaklinga sem gerði mér kleift að stunda mína vinnu, stunda mitt nám og aðstoðaði mig við það. Svo er það svokölluð ferðaþjónusta blindra sem ég get nýtt mér af því að ég hef aldrei getað tekið bílpróf. Það er ótrúlegt frelsi sem ég upplifði komandi úr litlu sveitarfélagi þar sem ég gat alltaf bjargað mér á tveimur jafnfljótum, en það gat ég ekki lengur þegar ég flutti til Reykjavíkur. Ég segi ekkert annað en það að hjarta mitt er að springa af þakklæti og ég vildi óska þess af öllu hjarta að þessi ríkisstjórn sæi sóma sinn í því að vanfjármagna ekki það sem hún ætlast til að Þjónustu- og þekkingarmiðstöð geti gert fyrir fólk sem er að glíma við sjónskerðingu og jafnvel blindu

Nú langar mig að halda áfram og vísa í umsögnina:

„Kaup og rekstur leiðsöguhunda er nú orðið lögbundið hlutverk Sjónstöðvarinnar en ekki hefur verið tekið tillit til þess nema að hluta.“

Þetta frumvarp fór í gegnum þingið fyrir einu og hálfu ári, um þarsíðustu jól. Það var ekkert annað en það að þingheimur samþykkti allur að koma til móts við blinda og það sjónskerta einstaklinga að það gæti breytt lífi þeirra algerlega til batnaðar að fá það hjálpartæki sem leiðsöguhundur er. Og hugsa sér, hér er fjárveitingavaldið, hér er löggjafinn, hér er löggjöfin klár, allt í lagi. Allir geta átt kost á því að fá sér leiðsöguhund, gjörið svo vel. En fyrirgefið, þið fáið ekki nóga peninga til þess. Hvurs lags eiginlega stjórnarhættir eru þetta, virðulegi forseti? Þetta minnir mig á sálfræðiþjónustuna í skólunum og annað slíkt, það er næstum búið að reyna að draga úr hverja einustu tönn til að reyna að fá fjármagn til að standa við það sem var augljós vilji löggjafans.

En ég vil halda áfram að tala um leiðsöguhundana. 10 milljónir sem komu inn í reksturinn á síðastliðnu ári nægja rétt til að greiða laun þjálfara leiðsöguhunda. Með auknum fjölda hunda, það eru þrír hundar á ári, þarf að huga að rekstri þeirra og afleysingu við þjálfara og möguleika á öðru stöðugildi. Það þarf helst að hafa þá tvo, ekki bara einn. Það þarf að tryggja úthlutun á nýjum sjónhjálpartækjum. Það er komin bylting. Nú erum við komin frá leiðsöguhundunum yfir í alveg spánýja byltingu sem hefði gert mér kleift að sjá á töfluna í skólanum sem ég hef aldrei á allri minni lífsfæddri ævi séð nokkurn einasta staf á. En nú er komið sjónhjálpartæki sem er höfuðborið stækkunargler sem hvert um sig kostar á bilinu 500.000 til 1 milljón kr. Þetta er alger bylting í lífi sjónskertra í dag og gefur þeim kost og möguleika á þátttöku í samfélaginu sem þeir höfðu ekki áður, eins og t.d. að sjá á töfluna í skólanum, horfa á sjónvarpið, nota snjallsíma, lesa af tölvu og margt fleira. Til að tryggja að úthlutanir verði í samræmi við þarfir fjölda einstaklinga þarf að grípa til aðgerða og úthluta fjármagni sérstaklega til þessara sjónhjálpartækja. Það er talið að um 150 einstaklingar geti nýtt sér þessa tækni, þetta er hrein viðbót við hóp sem ekki gat nýtt sér stækkunar- og hjálpartækjabúnað áður. Með þessu væri verið að tryggja jafnrétti til náms og bætt aðgengi sjónskertra að samfélaginu.

Af þessari upptalningu má vera ljóst að það vantar töluvert fjármagn upp á að Sjónstöðin geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Mig langar aðeins að vísa í það sem ég sagði í ræðu minni í gær, um 76. gr. stjórnarskrárinnar, þar sem segir í 1. mgr.:

„Öllum, sem þess þurfa, skal tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og sambærilegra atvika.“ — Sem sagt líka vegna fátæktar.

Virðulegi forseti. Það er orðið löngu tímabært, þegar ákall hefur verið eftir nýrri stjórnarskrá, að það sé a.m.k. farið eftir þeirri sem við erum með nú þegar og að hún sé ekki alltaf mölbrotin gagnvart þegnunum hvern einasta dag.