fjárlög 2023.
Forseti. Hv. þingmaður talar þarna um lögbundin verkefni Sjónstöðvarinnar. Mér finnst þetta alveg rosalega áhugavert mál enda hef ég verið með nokkrar spurningar, skriflegar fyrirspurnir, til allra ráðuneyta og allra stofnana ríkisins um kostnaðarmat á þeim lögbundnu verkefnum sem þær sinna. Svörin voru mjög skrýtin. Það var bara sagt: Það sem við fengum í fjárheimild síðast er það sem það kostar, sem er að sjálfsögðu bara rangt því að þjónustan samkvæmt lögbundnum verkefnum — uppáhaldsdæmið mitt er NPA-þjónustan þar sem er búið að skilgreina hversu marga samninga ríkið ætlar að styrkja en veitir bara til þess ákveðið háa fjárheimild. Þegar fjárheimildin er búin segja þau: Nei, við fjármögnum ekki fleiri samninga, þrátt fyrir að fjöldi samninganna standi í lögum. Það er skrýtið. Þannig að mig vantar alltaf matið á því hvað kostar að fara eftir lögum. Það finnst mér vera grundvallaratriði sem Alþingi ætti að vita. Ef fólki finnst það dýrt er kannski hægt að íhuga hvernig hægt er að gera hlutina betur og eitthvað svoleiðis, eða af því að þjónustan eða réttindin eru það mikilvæg þá bara borgum við fyrir það og finnum út hvernig við getum fjármagnað það. En þegar lögbundin verkefni eru undirfjármögnuð, eins og hv. þingmaður bendir á, fólkinu sem verið er að þjónusta fjölgar og ekki er komið með fjármagn á móti, þá fara bjöllur að hringja hjá mér: Bíddu, fyrirgefið, hvernig getur þetta gengið? Við erum t.d. með atvinnuleysistryggingar; ef einhver bætist við sem þarf á atvinnuleysistryggingum að halda þá borgum við það. En þegar einhver bætist við sem þarf á aðstoð að halda vegna sjónerfiðleika? Nei, peningurinn er búinn. Það gengur ekki upp að þetta sé svona mismunandi.