fjárlög 2023.
Herra forseti. Ég átta bara mig ekki alveg á því. Ég var á velferðarnefndarfundi í morgun þar sem verið var að fjalla um framlengingu bráðabirgðaákvæða vegna NPA-samninga. Miðað við stöðuna eins og hún var fyrir árið í ár, 2022, hefðu átt að vera um 80 fleiri samningar en voru í raun og veru. Af því að peningurinn, fjárheimildin sem var lögð fram í fjárlögum, kláraðist þá voru 80 einstaklingar sem fengu ekki þessa þjónustu, sem verða þá á biðlista, eru umfram það sem lögin segja til um. Núna er verið að gera það þannig að það eru 50 sem eiga að bætast við og eitthvert fjármagn er lagt til á móti. En við vitum að það eru kjarasamningar á næsta leiti og svoleiðis. Þegar ég reyni að spyrja: Ókei, ef kjarasamningarnir verða hærri en búist var við, gerir það það að verkum að einhverjir lenda utan þessara 50 samninga sem verið er að bæta við? Engin svör. Nefndin vildi einfaldlega ekki taka afstöðu til þess að það væri fjöldi samninganna sem skiptir máli en ekki fjárheimildin.