fjárlög 2023.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir ræðuna. Ég var einmitt búin að taka eftir þessari umsögn félagsins með langa titlinum sem ég get varla haft eftir hérna. Mig langaði til að spyrja hv. þingmann hvað henni þyki um það að það er stanslaust verið að gefa loforð. Í lögum eru gefin loforð. Við samþykkjum lög á þessu þingi um þjónustu sem á að veita fólki. Svo koma fjárlögin og það er ýmist hvergi minnst á tiltekna þætti eða það stendur „innan ramma“, sem mér finnst alltaf svo áhugavert að sjá í fjárlögum og var kannski það sem ég átti erfiðast með að skilja þegar ég byrjaði á þingi og var fyrst að lesa fjárlög. Það er tilgreind einhver þjónusta, það á að gera eitthvað, bæta úr einhverju og í reitnum þar sem stendur hversu miklum peningum á að verja til þess stendur: „innan ramma“. Ég hugsaði einmitt með mér þegar ég var að byrja hérna: Hvað þýðir þetta? Þá var mér sagt: Já, það þýðir að þetta er þegar inni í vinnu þessa stjórnvalds eða þjónustuveitanda og það á ekki að bæta neinu við kostnaðinn. En það er verið að bæta við. Það er verið að bæta við vinnu og verkefnum, hvort sem það eru bara verkefni eða eitthvað sem kostar beinlínis peninga, kaup á tækjum eða annað. Það er kannski erfiðara fyrir þau að segja að það sé innan ramma. En alls konar verkefni sem er bætt við eru sett innan ramma. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort henni finnist ekki að það væri heiðarlegra að skrifa bara: Við ætlum ekki að setja neina peninga í þetta, frekar en að segja að peningarnir séu til nú þegar. Til þess að geta farið að sinna nýjum verkefnum og þau eiga að vera innan ramma, þá hlýtur að þurfa að hætta einhverjum öðrum verkefnum. En það kemur ekki fram hvaða verkefni starfsfólk á að leggja frá sér til þess að geta sinnt (Forseti hringir.) þessum verkefnum sem eiga að rúmast innan ramma en eru samt ný.