153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:11]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir svarið. Einu sinni sem oftar erum við ótrúlega sammála í þessum málum og erum reyndar, held ég, oftar sammála en ósammála í flestu.

Ég hef lent í þessu nokkrum sinnum, kannski fyrst og fremst varðandi þá ákvörðun sem tekin var af meiri hluta á þingi fyrir alls ekki löngu síðan, að fella sálfræðikostnað undir sjúkratryggingar. Þetta spyrst út og fólk heyrir þetta og segir: Frábært ef það á að gera það. Svo er ég spurð sem alþingismaður, spurð út í bæ: Bíddu, af hverju? Voruð þið ekki búin að samþykkja þetta? Átti ekki að gera þetta? Og ég segi: Jú, við ætluðum að gera þetta en svo fengust ekki peningar til að sinna því. Þá hugsar maður: Hver er trúverðugleiki þingsins, trúverðugleiki löggjafans, þegar við erum stanslaust að samþykkja löggjöf sem er síðan ekki hægt að framfylgja? Þá veltir maður fyrir sér hvort þetta snúist ekki hreinlega um trúverðugleika Alþingis.