fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Velferð okkar, íbúa þessa lands, byggir á því að við fáum notið þjónustu sem hvert og eitt okkar þarf á að halda. Hv. þingmaður minntist hér á biðlista þeirra sem eru blindir eða sjónskertir á einhvern hátt. Hér hefur líka verið minnst á það að á síðasta kjörtímabili var sett í lög að sálfræðiþjónusta skuli vera hluti af almannatryggingakerfinu. Við vitum um biðlista hjá talmeinafræðingum. Við vitum um biðlista hjá sjúkraþjálfurum af því það eru ekki samningar við þá, sérgreinalæknar eru með lausa samninga þannig að það liggur alveg fyrir að stór hluti af íbúum þessa lands er ekki að fá þá þjónustu sem hann þarf á að halda. En einhverra hluta vegna heldur ríkisstjórnin því fram að hagur heimilanna hafi aldrei verið betri. (Forseti hringir.) Ég er búinn að heyra það ítrekað frá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hér í pontunni að staða heimilanna hafi aldrei verið betri. Deilir hv. þingmaður þeirri skoðun með hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra?