153. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[18:04]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (um fundarstjórn):

Forseti. Fjáraukinn var einmitt tekinn út í hádeginu. Þar var í rauninni bara gerð ein tæknileg breyting af því að ein fjárheimild fór á rangan stað. Við höfum áður afgreitt mál á mjög skömmum tíma, bara fyrir 3. umr. og svona. Því fyrr sem fjáraukinn kemst á dagskrá, því betra. Það stendur ekki á þinginu að afgreiða það. Ég held alla vega að líka þyrfti að klára fjáraukann til að klára hitt frumvarpið og því er bæði betra ef eitthvað er. En ég sé ekki að skjalavinnslan sé flókin eða eitthvað svoleiðis. Flokkur fólksins var með eina breytingartillögu við fjáraukann og svo var þessi tæknilega breyting hjá meiri hlutanum. Því hvet ég forseta til að vinna skjótt að þessu svo hægt sé að gera þetta frekar fyrr en síðar.