fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Eins og kom fram í máli hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar er formaður Flokks fólksins, Inga Sæland, með breytingartillögu við frumvarp til fjárauka sem lýtur að stuðningi til hjálparsamtaka sem útdeila matargjöfum í samfélaginu upp á 149 millj. kr. Einnig er breyting sem lýtur að eingreiðslu til eldri borgara fyrir jólin, svokölluðum jólabónus. Það er búið að samþykkja eingreiðslu til öryrkja og við teljum mjög mikilvægt að þessi breytingartillaga varðandi eldri borgara verði einnig samþykkt þar sem þetta er raunverulega hópur fólks sem stendur verr en öryrkjar, vegna þess að þegar farið er af örorku yfir á ellilífeyri þá lækka bæturnar til þessa fólks. Ég vænti þess að þetta fái góðan hljómgrunn í þingsal og verði vonandi samþykkt sem lög. Það er mjög mikilvægt.